Fundur 29. apríl
Fundur nr. 972 frá upphafi en 27. á starfsárinu. Næsti fundur, 29. apríl,
verður í umsjón forseta vors, Bergljótar Stefánsdóttur. Karl Gústaf
Kristinsson, prófessor emeritus og yfirlæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans mun flytja þarft erindi: Sýklalyfjaónæmi
er dauðans alvara - Mik
...

er dauðans alvara - Mikilvægi forvarna fyrir einstaklinga. Hinn árlegi plokkdagur
Rótarý verður næsta sunnudag, 26. apríl. Við hittumst í Borgum kl. 10.45 og förum
kl. 11 og plokkum í 1,5-2 klst. Göngum að Egilshöll og förum hringinn um kirkjugarðinn.
Á eftir gæðum við okkur á bakkelsi og drykk í Borgum. Plokkur og merkt
vesti verða í Borgum. Fundurinn 22. apríl fellur
niður. Miðvikudaginn 15.
apríl heimsóttum við Miðlun í Nóatúni 17. Þar fengum við höfðinglegar móttökur.
Árni Zophoníasson, stofnandi fyrirtækisins, sagði okkur frá ákaflega spennandi
sögu þess. Hann hefur rekið fyrirtækið nánast allt sitt líf en það hefur tekið
miklum breytingum. Gott dæmi um síbreytilegan heim. Umjónamaður fundarins var
Björn Jakob Tryggvason. Frábær fundur, 10
félagar mættu eða 56 % .
Fundarritari: Björn
Viggósson