Fundur 4. mars 2026

Wednesday, March 4, 2026 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland
Speaker(s):

Fundur nr. 966 frá upphafi en 21. á starfsárinu

Næsti fundur verður 4. mars og sér Loftur Már Sigurðsson um fundinn. Bíðið spent. Loftur verður sjálfur með erindið sem hann kallar:

"Samsæriskenningar ?

Red pill, blue pill, black pill.

Hvað er það"

Þeir sem ekki geta mætt missa af miklu. Búnaður verður til staðar til að spenna sætisólarnar.

Á fundinn 25. febrúar kom Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ og flutti ljómandi gott erindi um sambandið. Það spannar 25 íþróttahéruð og 480 íþróttafélög, sinnir umhverfismálum, íþrótta- og félagsstarfi. Starfstöð er í Reykjavík, á Sauðárkróki og starfræktar eru skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði en þangað koma árlega um 3600 nemendur frá 95 skólum og dvelja þar frá mánudegi til fimmtudags.

Gildin endurspeglast í ungmennafélagsandanum sem felur í sér að bæta sjálfan sig og samfélagið um leið. Jóhann Steinar er gamall Rótarýfélagi í Görðum í Garðabæ.

 

Góðar fréttir: Bókasafnið á Seltjarnarnesi þáði gamlar bækur sem Kjartan gaf þeim. Björn Jakob T. fór í fyrsta skipti í fótsnyrtingu og getur mælt með því. Vala sagði frá ánægjulegri veislu sem hún hélt fyrir dóttur sína sem var að ljúka námi við þriðju háskólagráðuna. Hún bauðst líka til að útvega ódýrt og gott rauðvín og hvítvín. Ástu og Bergljótu tókst að senda inn umsókn í verkefnasjóð Rótarý. Ásta og Björn T. kynna fljótlega fyrirhugaða haustferð vegna afmælis klúbbsins.

 

Í sínu 3ja mínútna erindi flutti Elísabet athyglisverða og þarfa hugvekju um sálgæslu. Hún ræddi um samúðarþreytu og kulnun. Samkvæmt rannsóknum er talið að við fáum 60-80.000 hugsanir á hverjum degi og þar af eru 85-90% sömu hugsanirnar. Því er mikilvægt að temja sér jákvæðar hugsanir og hafa ber sérstaklega þrennt í huga: 1. Að vera vel meðvitaður um hvað við hugsum. 2. Að við erum ekki fullkomin. 3. Að flétta hugleiðslu og núvitund inn í daglegt líf og venjur.

 

Á fundinn mættu 12 félagar eða 60% 

Fundarritari: Björn Viggósson


Your registration

Main participant

Registration


Registration until: Wednesday, March 4, 2026 at 6:15 PM

Max. number of participants: 100

Vinsamlegast skráið mætingu



Members: please login before registration.
Login before inscription   

Main participant

Privacy policy

Your registration

Main participant