Næsti fundur 14. janúar 2026

miðvikudagur, 10. desember 2025 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland

Fundur nr. 959 frá upphafi en 14. á starfsárinu.

Síðasti fundur ársins var 10. desember í umsjón Valfríður Möller.

 

Í sínu 3 mín. erindi las Geir Agnar Guðsteinsson upp úr fyrstu alvöru ritsmíð sinni sem blaðamaður í hálfa öld. Greinin birtist í skólablaði Vogaskóla og var um einn kennarann. Snemma beygist krókurinn því ritstíll, skopskyn og frásagnarháttur sem fram kemur í greininni virðist hafa fylgt Geir.

Á fundinn mættu 10 félagar eða 50% þátttaka miðað við 20 félaga.

Ísól Björk Karlsdóttir, fræðslustýra, kom og fræddi okkur um Kvennaathvarfið sem er með umfangsmikla starfsemi og býður upp á ráðgjöf og stuðning fyrir konur sem eru þolendur ofbeldis í nánum samböndum.

Starfsemin er bæði í Reykjavík og Akureyri og nýtur í dag skilnings og velvildar almennings sem er mikil breyting frá því samtökin voru stofnuð 1982.

 

Næsti fundur verður 14. janúar 2026 í Borgum

Fundarritari óskar öllum velfarnaðar.

Björn Viggósson


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn