Hvað er að gerast í Ljósufjallakerfinu ?

mánudagur, 12. maí 2025

Jón Karl Ólafsson

Rótarýklúbbur Borgarnes, Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs og Sveitarfélagið Borgarbyggð standa fyrir opnum fundi um jarðhræringarnar sem hafa verið í gangi á svokölluðu Ljósufjallakerfi. Frummælandi verður Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur sem eftir erindi sitt mun svara fyrirspurnum fundargesta. Fundurinn verður 15. maí í Hjálmakletti í Borgarnesi, hefst klukkan 20 og er öllum opinn.

Eins og margir vita hefur verið aukin jarðskjálftavirkni á þessu svæði að undanförnu. Ari Trausti segir kerfið allt nái frá Hraunsfirði í NV, til SA um Ljósufjöll, Hnappadal, fjöllin og dalina austur af honum og allt til Grábrókar í Borgarfirði. Rauðhálsar, skammt frá Kolbeinstaðafjalli, er hins vegar nýjasta eldstöðin og yngri en landnám. Til er forn sögusögn sem skrifuð var um þrjúhundruð árum eftir að gaus í Rauðhálsum, sem talið er í dag eigi við það eldgos. En þar segir m.a.: „Um nóttina kom þar upp jarðeldur, og brann þá Borgarhraun. Þar var bærinn, sem nú er borgin.“ Var lengi talið að hér væri verið að vísa til Eldborgar í Hnappadal en við aldursgreiningu á hrauninu kom í ljós að svo gat ekki verið því það hraun er mikið eldra. Sagan kennir okkur því að þetta eldstöðvakerfi hafi eytt sveitabæ, sem staðið hafi þar sem eldgígurinn Rauðhálsar er núna. Í Sturlubók Landnámabókar segir að bærinn hafði heitið því sérstæða nafni, Hripi.

Aðspurður segðist Ari Trausti fara yfir höfuðatriði eldvirkni á Íslandi og þá einkanlega á Snæfellsnesi til að ramma virknina í Ljósufjallakerfinu af. Hann muni segja frá eldvirkni á kerfinu og kynnir nokkrar helstu eldstöðvarnar. Þeirra á meðal gosstöðvar nálægt Grjótárvatni, þar sem skjálftavirknin er nú. Hann fer yfir hana og mögulegar orsakir. Að lokum dregur hann saman þær sviðsmyndir sem varða jarðskjálfta og eldgos á þessum slóðum og í kerfinu i heild. Hvað getur gerst á núverandi óróasvæði, á yfirstandandi ári og á næstu árum eða áratugum.

Nánari uoplýsingar um fundinn:  Opinn fræðslufundur um skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu - Borgarbyggð

Mynd Hjalti Freyr Ragnarsson. Myndin fengin af visir.is