Heimsókn umdæmisstjóra

sunnudagur, 9. september 2018

Vigdís Stefánsdóttir

Miðvikudaginn 6. september heimsótti umdæmisstjóri Grafarvogsklúbbinn.

Garðar Eiríksson umdæmisstjóri hafði frá mörgu að segja og hvatti félaga til að hlúa að vináttunni - að gæta vel að því að allir félagar klúbbsins taki þátt í því sem fram fer. Hann lagði líka áherslu á einkunnarorð sín, byggjum brýr, tengjum fólk sem svo sannarlega á við um Rótarý.