Vetni- og rafeldsneyti

miðvikudagur, 9. febrúar 2022

Hallmar Haldórs

Hallmar Halldórs vélaverkfræðingur fór vítt og breytt yfir þróunarvinnu sem hefur átt sér stað í sambandi við orkuskipti framtíðarinnar. Clara Energy ehf var stofnað af honum í kringum þróun vetnis- og orkuinnviðalausna og hefur verið virk í ráðgjöf og viðskiptaþróun á sviði vetnisgeymslu, orkumannvirkja, framtíðarorkumarkað og orkuviðskipta. Fór hann yfir kosti og galla mismunandi valkosta sem bjóðast í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti en metnaður Clara Energy er að þróa og fjárfesta í verkefnum þvert yfir virðiskeðju græna vetnisins sem fela í sér framleiðslu, geymslu, dreifingu og afhendingu á grænu vetni sem og núll/kolefnishlutlausu rafrænu eldsneyti unnið úr grænu vetni.