Á fundinum þann 17. október. sagði Björn Vernharðsson þrjár listasögur, af málverkum sem hann á. Verkin eru hvert öðru ólíkara. Fyrsta myndin var máluð eða gerð árið 1942 af Gunnlaugi Blöndal sem málaði margar myndir, margar eftir öðrum myndum. Næsta mynd hafði verið keypt í London fyrir löngu og er mögulega skissa sem gerð var á undan annarri, eftir Gustave Dore, 1880. Myndirnar eru glettilega líkar.
Talsverðar getgátur hafa verið um það hvort myndin af ungu konunni í gula kjólnum sé af Auði Laxness. Myndin er máluð af Karen Agnethe Þórarinsson. Það væri gaman að komast að því hvort þetta sé rétt.
Næsti fundur er eftir viku, þá verður rætt um svefn og svefngæði. Björn Vernharðsson verður með 3 mín. erindi.