Skákverðlaun
Klúbburinn hefur lengi staðið á bak við hina mögnuðu ungu skákmenn Rimaskóla, veitt verðlaun árlega og fært þeim m.a. skákklukkur.
Sumarskákmót Fjölnis var haldið 8. maí 2025. Kjartan Eggertsson, forseti Rótarýklúbbs Rvík- Grafarvogs var heiðursgestur mótsins. Kjartan ávarpaði þátttakendur sem voru á annað hundrað, lék fyrsta leikinn og afhenti æfingameisturum vetrarins verðlaunagripi en Rótarýklúbburinn gaf alla verðlaunagripi mótsins.
Sjá: https://skak.is/2025/05/09/a-annad-hundrud-keppendur-a-sumarskakmoti-fjolnis-2025/
Ótrúlega öflugt skáklíf ungmenna í Grafarvogi.
Það er ekki hægt annað en dást að hinu ótrúlega öfluga skáklífi ungmenna í Grafarvogi og innan skákdeildar Fjölnis. Maðurinn á bak við þetta er Helgi Árnason, fyrrum skólastjóri í Rimaskóla, sem hefur unnið að því af lífi og sál að breiða út skáklistina og kveikja áhuga ungmenna á íþróttinni. Starfið hefur skilað sér í nokkrum stórmeisturum sem við Grafarvogsbúar eigum. Helgi heldur utan um vikulegar skákæfingar og sinnir krökkunum af kostgæfni.
Heimild: https://www.grafarvogur.net/otrulega-oeflugt-skaklif-ungmenna-i-grafarvogi-oekk-se-helga-arnasyni
Sjá einnig grein eftir Helga Árnason um skák í skólum: https://grafarvogsbuar.is/helgi-arnason-fyrrverandi-skolastjori-rimaskola-skrifar-mikilvaegan-pistil-um-skak-i-skolum/
Kjartan Eggertsson með verðlaunahöfum