Fundur 28. janúar 2026

miðvikudagur, 28. janúar 2026 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland
Fyrirlesari(ar):

  Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir sjúkraþjálfari  

Fundur nr. 962 frá upphafi en 17. á starfsárinu

Fundurinn 28. janúar var í umsjón Kjartans Eggertssonar.

Gestur var Svanhvít Sigurðardóttir.

Góðar fréttir: Björn Jakob Tryggvason sagði frá barnabarni sínu, stúlku sem er byrjuð í læknisfræði í Svíþjóð.

Forseti sagði frá Rótarý-verkefnasjóði sem sækja má um styrk í fyrir nærumhverfið. Samþykk var að biðja Ástu Þorleifsdóttir vinsamlegast um að kanna hvar þörf væri fyrir ný skilti í hverfinu. Áður hefur klúbburinn komið fyrir nokkrum leiðbeinandi skiltum og hafa þau gert sitt gagn.

3 mínútur: Björn Jakob Tryggvason flutti rímur eftir Þórarinn Eldjárn og fjölluðu þær um skjánotkun á þann hátt sem höfundi er einum lagið.

Geir Agnar Guðsteinsson sagði frá verðlaunaafhendingu í Borgarholtsskóla sem hann sá um fyrir hönd klúbbsins. Styrk okkar, að upphæð kr. 75.000, fékk Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir fyrir að sýna miklar framfarir í námi og líka fyrir félagsstörf en hún hafði umsjón með Japansklúbbum.

 

Erindi: Dóttir Kjartans og Svanhvítar, Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir, sjúkraþjálfari hjá Bata sjúkraþjálfun flutti mjög fræðandi erindi sem hún nefndi: "Hvað er fitubjúgur og lipoedema?"

Erindið var vel flutt og Heiðbjört Tíbrá náði að upplýsa fundarmenn um þennan sérstaka hormónasjúkdóm sem mun vera arfgengur. Hún hefur verk að vinna við að gera lífið bærilegra hjá þeim sem hafa þennan sjúkdóm.

 

Á fundinn mættu 12  félagar eða  60 %.

Næsti fundur verður 4. 2. 2026 í umsjón Eiríks Arnarsonar en 3 mínútur sér Ásta Þorleifsdóttir um.

Fundarritari: Björn Viggósson


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn