Fundargerð síðasta fundar
Fundurinn 28. janúar var
í umsjón Kjartans Eggertssonar. Gestur var Svanhvít Sigurðardóttir.
Góðar fréttir: Björn
Jakob Tryggvason sagði frá barnabarni sínu, stúlku sem er byrjuð í læknisfræði
í Svíþjóð. Forseti sagði frá Rótarý-verkefnasjóði sem sækja má um styrk í fyrir
nærumhverfið. Samþykk var að biðja Ástu Þorleifsdóttir vinsamlegast um að kanna
hvar þörf væri fyrir ný skilti í hverfinu. Áður hefur klúbburinn komið fyrir
nokkrum leiðbeinandi skiltum og hafa þau gert sitt gagn.
3 mínútur: Björn
Jakob Tryggvason flutti rímur eftir Þórarinn Eldjárn og fjölluðu þær um
skjánotkun á þann hátt sem höfundi er einum lagið.
Geir Agnar
Guðsteinsson sagði frá verðlaunaafhendingu í Borgarholtsskóla sem hann sá um
fyrir hönd klúbbsins. Styrk okkar, að upphæð kr. 75.000, fékk Ingibjörg
Jakobína Jónsdóttir fyrir að sýna miklar framfarir í námi og líka fyrir
félagsstörf en hún hafði umsjón með Japansklúbbum.
Erindi: Dóttir Kjartans
og Svanhvítar, Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir, sjúkraþjálfari hjá Bata
sjúkraþjálfun flutti mjög fræðandi erindi sem hún nefndi: "Hvað er
fitubjúgur og lipoedema?"
Erindið var vel flutt
og Heiðbjört Tíbrá náði að upplýsa fundarmenn um þennan sérstaka hormónasjúkdóm
sem mun vera arfgengur. Hún hefur verk að vinna við að gera lífið bærilegra hjá
þeim sem hafa þennan sjúkdóm. Á fundinn mættu 12 félagar eða 60 %.
Fundarritari: Björn
Viggósson