Fundur nr. 972 frá upphafi en 27. á starfsárinu.
Fundurinn
29. apríl var í umsjón forseta vors, Bergljótar Stefánsdóttur.
Á
fundinn mættu 12 félagar eða 67%.
Gestir:
Hulda Óskarsdóttir og Sigurður Arnar Einarsson.
Góðar
fréttir: Árlegur plokkdagur Rótarý var sunnudaginn 26. apríl. Fimm fræknir
félagar leystu málið.
Í
3 mínútum sagði Bergljót okkur frá skemmtilegri ferð til London en þar er komið
vor með blóm í haga.
Karl
Gústaf Kristinsson, prófessor emeritus og yfirlæknir á Sýkla- og
veirufræðideild Landspítalans flutti fróðlegt erindi sem hann nefndi:
Sýklalyfjaónæmi er dauðans alvara - Mikilvægi forvarna
fyrir einstaklinga.
Mjög
þarfur og fróðlegur fyrirlestur um brýnt mál sem varðar flesta. Gæti orðið
vandlifað ef svartsýnar spar rætast.
Næsta
fund, 06. maí, sér Guðlaug Sigurðardóttir um. Hildur Árnadóttir verður með 3
mínútur.
Fundarritari:
Björn Viggósson
Miðvikudaginn 15. apríl heimsóttum
við Miðlun í Nóatúni 17. Þar fengum við höfðinglegar móttökur. Árni
Zophoníasson, stofnandi fyrirtækisins, sagði okkur frá ákaflega spennandi sögu
þess. Hann hefur rekið fyrirtækið nánast allt sitt líf en það hefur tekið
miklum breytingum. Gott dæmi um síbreytilegan heim. Umjónamaður fundarins var
Björn Jakob Tryggvason.