Fundur 6. maí

miðvikudagur, 6. maí 2026 18:15-19:03, borgir
Fyrirlesari(ar):

Kristín Leifsdóttir barnalæknir

Kristín Leifsdóttir barnalæknir

Fundur nr. 973 frá upphafi en 28. á starfsárinu.

Fundurinn 06. maí var í umsjón Guðlaugar Sigurðardóttur.

Kristín Leifsdóttir, Phd í nýburalækningum, barnalæknir, sérfræðingur í nýburalækningum og forstöðulæknir á kvenna og barnaþjónustu Landspítala flutti mjög fræðandi og áhugaverðan fyrirlestur sem hún nefndi:

 “Það ætti ekki að ráða lífslíkum barns hvar í heiminum það fæðist.”

Kristín kynnti Gambíuverkefnið sem leggur áhersla á miðlun þekkingar. Hún, ásamt samstarfskonu sinni sem einnig mætti, Björk Áskelsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóir, leiða verkefnið fyrir sænsk góðgerðasamtök. Þar sameinast 55 sjálfboðaliðar og menntaðir heilbrigðisstarfsmenn til góðra verka. Þær stöllur snertu hjarta viðstaddra enda málefnið þess eðlis að allir geta væntanlega sameinast um að bæta lífslíkur fyrirbura.

 

Góðar fréttir: Ásta bað félaga um að styðja áframhaldandi veru Gróðarstöðvarinnar Markar sem er sú síðasta í Reykjavík.

Hildur Árnadóttir sagði frá skemmtilegri dvöl á Möltu í sínum 3 mínútum. Áhugavert lítið land sem stórþjóðir hafa ráðskast með í gegn um aldirnar. Ferðamennskan er margföld á við okkar en samt lánast eyjaskeggjum að komast bærilega af og hafa náð að varðveita sína sérstöku menningu.

Gestir: Anna Sigurðardóttir, væntanlegur félagi og Björk Áskelsdóttir.

Á fundinn mættu 11 félagar eða 61%.

Fundarritari: Björn Viggósson


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn